10 Október 2014 12:00

Brot 51 ökumanns var myndað á Álftanesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í austurátt, við Gálgahraunsveg. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 146 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sextán óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 84. 

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.