13 Mars 2015 10:50

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Álftanesvegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Álftanesveg í suðurátt, við Garðaveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 131 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 9%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 86 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 106.

Vöktun lögreglunnar á Álftanesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.