19 Mars 2009 12:00

Tuttugu og fjórir ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Arnarhrauni í Hafnarfirði í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 24 ökumanna mynduð á Arnarhrauni en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt, að Smyrlahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 56 ökutæki þessa akstursleið og því óku 43% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði, hraðahindranir og mjög þétt íbúabyggð. Tveir mældust á 50 km hraða. 

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Arnarhrauni. Þá óku hlutfallslega færri of hratt eða yfir afskiptahraða, eða 35%. Meðalhraði hinna brotlegu var sömuleiðis örlítið lægri í fyrra, eða tæplega 44 km/klst. Þróunin á milli ára er því neikvæð hvað þetta varðar.