13 Apríl 2011 12:00

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, að Sléttahrauni. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 49 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 47%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið lægra, eða 34-43%, en meðalhraði hinna brotlegu er svipaður og áður.