23 Mars 2012 12:00

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, á milli Smyrlahrauns og Sléttahrauns. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51. 

Vöktun lögreglunnar á Arnarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.