21 Mars 2014 12:00

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, á milli Smyrlahrauns og Sléttahrauns. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 32 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Arnarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.