22 Mars 2016 16:33

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, á móts við Arnarhraun 13. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 28 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 66.

Vöktun lögreglunnar á Arnarhrauni er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.