19 Mars 2008 12:00

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Arnarhrauni í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarhraun í vesturátt, við Smyrlahraun. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var  tæplega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 50.

Eftirlit lögreglunnar á Arnarhrauni er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Arnarhrauni var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.