16 Október 2017 09:02

Brot 76 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Nónhæð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 402 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tólf óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.