8 Mars 2018 10:12

Brot 66 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Nónhæð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 369 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tíu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 90.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að sól og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.