3 Maí 2018 13:05

Brot 58 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Nónhæð. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 380 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 15%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 74 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sex óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að éljagangur og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.