11 Október 2018 16:31

Brot 61 ökumanns var myndað á Arnarnesvegi í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Fífuhvammsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 226 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Níu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á með hraðamælingunni stóð.