22 Mars 2022 09:24

Brot 27 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Nónhæð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 513 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega fáir ökumenn, eða 5%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 72 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 79.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.