8 Júlí 2016 12:16

Brot 85 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Fífuhvammsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 225 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Þrettán óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 110.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.