22 Júlí 2016 11:11

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Fífuhvammsvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 115 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 41%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 76 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 105.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.