30 Nóvember 2016 11:25

Brot 67 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, að Fífuhvammsvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 244 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 75 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði. Tíu óku á 80 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 109.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.