24 Apríl 2024 11:36

Brot 73 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Salavegi. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 317 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fimmtungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 108.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.