3 Maí 2013 12:00

Brot 92 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, við Salaveg. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 200 ökutæki þessa akstursleið og því ók næstum helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Þrjátíu og þrír óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 83.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.