28 Nóvember 2013 12:00

Brot 79 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í vesturátt, við Salaveg. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 219 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.