1 Desember 2014 12:00

Brot 57 ökumanna voru mynduð á Arnarnesvegi í Kópavogi í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Arnarnesveg í austurátt, að Salavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 247 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í fjórðungur ökumanna, eða 23%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 88.

Vöktun lögreglunnar á Arnarnesvegi er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.