18 Maí 2022 10:19

Brot 47 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í austurátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 135 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 35%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 43 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Ásabraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að hálfskýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.