18 Ágúst 2022 09:20

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í austurátt, við Asparás. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 19 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Ásabraut er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning og blautt var á meðan hraðamælingunni stóð.