8 Apríl 2009 12:00

Tuttugu voru staðnir að hraðakstri á Ásabraut í Garðabæ í gær en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar í gær eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Eins og fyrr sagði voru brot 20 ökumanna mynduð á Ásabraut en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því óku 53% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 50 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Níu óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 60.  

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Ásabraut og þá var niðurstaðan sömuleiðis óásættanleg. Þá óku 65% of hratt eða yfir afskiptahraða en meðalhraði hinna brotlegu var hinsvegar lægri í fyrra, eða rúmlega 46 km/klst. Ljóst er að sveitarfélagið þarf að huga að úrbótum á Ásabraut.