10 Maí 2011 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í vesturátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 22 ökutæki þessa akstursleið og því ók helmingur ökumanna, eða 50%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 48 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið jafnan verið mjög hátt, eða 53-65% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið á bilinu 47-52 km/klst.