11 Apríl 2012 12:00

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í norðurátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 55%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 51. 

Vöktun lögreglunnar á Ásabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.