9 Apríl 2015 14:32

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í norðurátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 24 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 63%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fjórir óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 58.

Vöktun lögreglunnar á Ásabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.