5 Apríl 2017 17:27

Brot 17 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í norðurátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 29 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 59%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 49 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Átta óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 57.

Vöktun lögreglunnar á Ásabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.