8 Apríl 2008 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Ásabraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásabraut í vesturátt, við Birkiás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi,  fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók meirihluti ökumanna, eða 65%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var rúmlega 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sex óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.      

Eftirlit lögreglunnar á Ásabraut er hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu en unnið er eftir ábendingum frá starfsmönnum svæðisstöðva lögreglunnar. Á Ásabraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.