19 Apríl 2011 12:00

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í suðurátt, við leikskólann Stekkjarás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 57 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fimm óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78. 

Þess má geta að lögreglan hefur verið við hraðamælingar á þessum stað nokkrum sinnum áður og þá hefur brotahlutfallið verið 28-41% en meðalhraði hinna brotlegu hefur verið svipaður á milli ára, eða um 67 km/klst.