14 Mars 2012 12:00

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í vesturátt, við Álftaás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 45 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fjórðungur ökumanna, eða 24%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 77.

Vöktun lögreglunnar á Ásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.