12 Mars 2014 12:00

Brot 8 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í vesturátt, við Álftaás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 31 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Ásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.