24 Mars 2017 11:20

Brot 11 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í vesturátt, við Álftaás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 32%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 74.

Vöktun lögreglunnar á Ásbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.