16 Mars 2009 12:00

Tuttugu og fimm ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Ásbraut í Hafnarfirði á föstudag en þar var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf. Mælingarnar eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu.

Brot 12 ökumanna voru mynduð á Ásbraut, nærri leikskólanum Stekkjarási, fyrir hádegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í suðurátt en þarna er 50 km hámarkshraði, gatnamót, biðstöð strætisvagna og fyrrnefndur leikskóli. Á einni klukkustund fóru 42 ökutæki þessa akstursleið og því óku 29% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst. Fjórir óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 79. 

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Ásbraut, á milli Goða- og Vörðutorgs, fyrir hádegi á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið í vesturátt en þarna er 50 km hámarkshraði. Á einni klukkustund fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því óku 14% ökumanna of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst. Tveir óku á 70 km hraða eða meira en báðir mældust á 73. 

Fyrir nákvæmlega ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sömu stöðum við Ásbraut en útkoman núna er ívið skárri en þá. Árið 2008 var hlutfall brotlegra ökumanna 41% hjá þeim sem óku suður Ásbraut en núna 29%, eins og áður var nefnt. Hlutfall þeirra sem óku of hratt eða yfir afskiptahraða vestur Ásbraut er hinsvegar svipað á milli ára en það var 12% í fyrra.