15 Mars 2010 12:00

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í suðurátt, við leikskólann Stekkjarás. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 61 ökutæki þessa akstursleið og því ók þriðjungur ökumanna, eða 33%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 67 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 82.

Mælingarnar á föstudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Ásbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Ásbraut en þá óku hlutfallslega aðeins færri, eða 29%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 41%.