15 Mars 2010 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Ásbraut í Hafnarfirði á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásbraut í vesturátt, á milli Vörðu- og Goðatorgs. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því óku allnokkrir ökumenn, eða 16%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Mælingarnar á föstudag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Ásbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Ásbraut en þá óku hlutfallslega aðeins færri, eða 14%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 12%.