30 Mars 2022 12:55

Brot 20 ökumanna voru mynduð á Ásvallabraut í Hafnarfirði í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Ásvallabraut í suðurátt, að Skarðshlíð. Á einni klukkustund, í hádeginu, fóru 55 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 66 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Ásvallabraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.