19 Desember 2012 12:00

Brot 15 ökumanna voru mynduð á Austurbrún í Reykjavík í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurbrún í norðurátt, að Dragavegi. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 44%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 47 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Fimm óku á 50 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 64.

Vöktun lögreglunnar á Austurbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.