9 Desember 2013 12:00

Brot 4 ökumanna voru mynduð á Austurbrún í Reykjavík á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurbrún í norðurátt, að Dragavegi. Á einni klukkustund, um hádegisbil, fóru 38 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáeinir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 41 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. 

Vöktun lögreglunnar á Austurbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en ábendingar höfðu borist um hraðakstur á þessum stað.