12 Júní 2015 16:55

Brot 13 ökumanna voru mynduð á Austurbrún í Reykjavík á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurbrún í norðurátt, á móts við Austurbrún 29. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 34 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en þriðjungur ökumanna, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 53.

Vöktun lögreglunnar á Austurbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.