29 September 2015 18:07

Brot 9 ökumanna voru mynduð á Austurbrún í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurbrún í suðurátt, á móts við Austurbrún 29. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 30 ökutæki þessa akstursleið og því ók meira en fjórðungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 45 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði.

Vöktun lögreglunnar á Austurbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.