15 Ágúst 2016 17:08

Brot 19 ökumanna voru mynduð á Austurbrún í Reykjavík í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurbrún í norðurátt, á móts við Austurbrún 27. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 41 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í helmingur ökumanna, eða 46%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 46 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 60.

Vöktun lögreglunnar á Austurbrún er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.