29 Febrúar 2008 12:00

Brot tólf ökumanna voru mynduð á Austurbrún á þriðjudaginn í síðustu viku. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Austurbrún í norðurátt, nærri Dragavegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi,  fóru 44 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 27%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var um 43 km/klst en sá sem hraðast ók mældist á 50. Þarna er 30 km hámarkshraði en umrædd vöktun var gerð nærri biðstöðvum strætisvagna.

Eftirlit lögreglunnar á Austurbrún kom í kjölfar ábendinga frá íbúum í hverfinu. Þar býr talsvert af eldri borgurum og margir þeirra nota áðurnefndar biðstöðvar. Lögreglan biður ökumenn að hafa þetta hugfast og miða akstur alltaf við aðstæður, á Austurbrún sem annars staðar.