2 Febrúar 2015 18:41

Brot 10 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í vesturátt, að Hofsstaðabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fór 81 ökutæki þessa akstursleið og því óku nokkrir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 82.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.