29 Júlí 2015 10:38

Brot 22 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í vesturátt, að Hofsstaðabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 133 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 17%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 62 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 72.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.