18 September 2017 16:01

Brot 18 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ á fimmtudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í suðurátt, frá Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 96 ökutæki þessa akstursleið og því ók tæplega fimmtungur ökumanna, eða 19%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.