2 Nóvember 2017 13:23

Brot 23 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í norðurátt, að Arnarnesvegi. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 185 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 12%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 76.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á með hraðamælingunni stóð.