18 Október 2018 13:37

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ á þriðjudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í norðurátt, við Blómahæð. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 196 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 18%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 63 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 86.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að rigning var á meðan hraðamælingunni stóð.