30 Júní 2022 15:48

Brot 16 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, í hádeginu, fóru 143 ökutæki þessa akstursleið og því óku allmargir ökumenn, eða 11%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 65 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 81.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu, en þess má geta að skýjað og þurrt var á meðan hraðamælingunni stóð.