7 Apríl 2010 12:00

Brot 35 ökumanna voru mynduð á Bæjarbraut í Garðabæ í dag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, fyrir hádegi, fóru 97 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega þriðjungur ökumanna, eða 36%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 69 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Ellefu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 100.

Mælingarnar í dag eru hluti af sérstöku umferðar- og hraðaeftirliti í og við íbúðargötur í umdæminu. Á Bæjarbraut var staðsett ómerkt lögreglubifreið sem er búin myndavélabúnaði. Reynslan hefur sýnt að notkun slíks búnaðar gefur gagnlegar upplýsingar um ástand umferðarmála og auðveldar leit að lausnum þar sem þeirra er þörf.

Fyrir ári var lögreglan við hraðamælingar á þessum sama stað á Bæjarbraut en þá óku hlutfallslega ívið fleiri, eða 38%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Árið áður (2008) var niðurstaðan hinsvegar 40%.