27 September 2010 12:00

Brot 51 ökumanns var myndað á Bæjarbraut í Garðabæ á föstudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Bæjarbraut í austurátt, að Karlabraut. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fór 171 ökutæki þessa akstursleið og því ók hátt í þriðjungur ökumanna, eða 30%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 64 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Sex óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 75.

Vöktun lögreglunnar á Bæjarbraut, en í nágrenninu er Hofsstaðaskóli, er liður í umferðareftirliti hennar við grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu.